02.04.2007 08:49:52 / attikitt
ég er komin með nýtt blogg! Var alveg nóg boðið í gær á
blog.central alltaf endalaust vesen kíkja á
www.kittlingur.bloggar.is
»
17.03.2007 18:14:48 / attikitt
Ég er með soldið sem ég vil segja. Við Eiður vorum að horfa á
sjónvarpið og einhvernvegin rekumst við á þennan þátt oftar en einu
sinni. Fyrst kemur íslenski fáninn og svo ofboðslega dáleiðandi
tónlist og ljósmyndir frá íslandi. Svo kemur ofboðsleg vélmennarödd
og tvær grænar geimverur. Við Eiður vorum eitthvað bara what og
gláptum bara. Urðum sammála um að þetta væri einhvurslag
dáleiðslumyndband til að lokka okkur til baka og við erum
líka handviss um það er pottþétt FRÍÐA SEM STENDUR Á BAKVIÐ
ÞETTA!!!! Þetta er bara of weird!!! Það er eins og Fríða kunni allt
í einu á tölvur og setja saman myndir í powerpoint. Þetta er einum
of skuggalegt sko!!! Fríða hefur orðið að einhverju ofurklikkuðu
mastermind freak í fjarveru minni. En já ég er samt þakklátt fyrir
að fólk reyninr allavega
En já talandi um Ísland. Tungumálaörðugleikar!!! Sannit félagi
gerði mig alveg gjörsamlega kjaftstopp með því að segja
eftirfarandi: "i like to go to iceland to see gays!"
ég varð svo
hissa enda vorum við nýbúin að ræða hans turn on s.s.stórir rassar
og Casper kennarinn hans. Ég og Adrian vorum alveg eins og útúr kú
eftir þessa tilkynningu hans og hann meinti það svo innilega. Hann
var ekki með Þetta skítaglott á andlitinu eins og hann er alltaf
með þegar hann er að tjá sig um allan andskotann. En svo þegar ég
var búinn að sitja og glápa á hann heillengi þá fattaði ég loksins
hvað hann átti við, auðvitað var hann að meina að hann langaði að
sjá Geysi!!! Svo fannst hann við vera ógeðslega vitlaus og hló
þvílíkt að okkur. Við erum sko að tala um manninn sem var fyrstur
til að fatta af hverju prump er fyndið og HONUM FINNST VIÐ VERA
VITLAUS. Kittan varð kjaftstopp þennan dag
Svo er ég búin að fara í modultest í skólanum. Það þýðir sko að
ég tek próf til að sjá hvort að ég er nógu gáfuð í dönski til að
hífa mig uppúr þriðja stigi. En guð hvað ég vona að ég hafi náð.
langar að gera gera eitthvað annað en að hanga í sprogssolen er
alveg gjörsamlega búin að fá nóg. Langar að reyna að byrja í social
og sundhed núna í apríl og bara drífa þetta af.
Svo er að verða hlýtt í Danmörku eða að minnsta kosti hlýrra en
á íslandi. Það koma alveg sjóðandi heitir dagar öðruhvoru og ég
bráðna niður í lítinn ógeðslegan svitapoll með járnhrúgu
Talandi um járnhrúgu!!! Teinarnir fara að fjúka bráðum



og þegar ég kem að heimsækja ísland aftur verð ég svo guðdómlega
falleg að allir falla í stafi. Ómægod get ekki beðið eftir að losna
við þetta helvítis járnrusl.
En nú er kominn tími til að gera sig sæta ætla á ghost rider með
Eið, Guðjóni og whatshername
sssjáumst þegar þið getið ekki skotið á mig lengur. Adios
»
12.03.2007 19:11:17 / attikitt
»
12.03.2007 11:47:30 / attikitt
Núna er ég farin ad spjalla heilmikid vid J. Bradshaw hjá
Washington publishers. Kveikjan ad tví var linkur á b2 http://www.b2.is/?sida=tengill&id=226038 ég
bara gat ekki setid á mér vid ad senda honum póst. tetta er svo
mikil snilld!!
Minnn póstur til teirra:
Kristín Anna wrote:
> i'm not a potiential buyer but i sure had fun reading the
introducion on
>icelandic
It was as a matter of fact really interesting like
for example
>choosing your babys "sexlife" (direct translation of kynlíf) or
even the
>doctors name (dr. spot grasshill) Well this was really amusing
and i can't
>get tired of reading it over and over and laugh my organs out.
Keep up good
>job i really enjoyed reading this. maybe if you translate the
book to
>iceland by yourselves there is a good chances that i buy
it
>
>With all my respect Kristín Jóhannsdóttir
Svar J. Bradshaw
>hallo kristin,
>
> haha, LOL, we too laughed at your email! that is what we get
for using
>that silly auto-translation software...
>
> see, we have the page up for 'search engines' to find us, but
not so
>much worried about the exactness of the translation, i mean,
people
>having babies search for stuff in the icelandic language (btw,
what is it--
>icelandish?)
>
> what terms did you search that brought you too us, ?
>
> j bradshaw
Hehe mér fannst tetta alveg frábært. og svo var hann
eldsnöggur ad svara mér í sömu mynt. vá ekki eru allir kanar
alslæmir
Svo erum vid búin ad vera ad ræda um ísland og ameríku
alveg út eitt. En ég fæ aldrei leid á ad lesa tetta
Good
sjitt
»
22.02.2007 21:21:40 / attikitt
Vá var að gera mér grein fyrir því hvað ég öfunda karlmenn. Kveikja
að þessari pælingu var að ég er að gera svaka ritgerð í skólanum um
heilbrigðiskerfið í danmörku með fókusinn á málefni fatlaðra. Heh
bara þrjár síður fyrir nýbúa sem veit ekki haus né sporð í dönsku!!
en allavega kærastinn minn spurðaf hverju ég kóperaði ekki bara
einhverja ritgerð og svo tók hann alla post it miðana mína til að
búa til teiknimynd!!! Ég sat bara þarna gapandi búin að sitja
sveitt yfir orðbókum, bæklinum og upplýsingamiðlunum á google og
hafði aldrei dottið þetta í hug og svo þegar hann sat með
teiknimyndina sína á bleiku post it miðunum þá klikkaði eitthvað í
hausnum á mér! Af hverju gat mamma ekki útbúið mig með bara þrjár
virkar heilasellur, Eina fyrir svona hluti, eina fyrir kynlíf og
eina fyrir allskonar dellur eða ss af hverju gat ég ekki verið
gaur???
í staðinn fæddist ég með það sem kallast pjásubölvun! Ég semsagt
hef ekki pláss fyrir heila þarna niðri. konum var gefið eitt stykki
heili en karlmenn fengu tvö stykki en nota bara annað!!!
Þegar maður er með pjásubölvun er maður stútfullur af allskonar
græjum til að ganga með aðra manneskju í maganum á sér og
ekki pláss fyrir mér og að ég tali ekki um estrógenið sem
gjörsamlega sýður á manni ef eitthvað bregður útaf og fær mann til
að gera of marga hluti í einu og jafnvel hugsa fyrir marga í einu.
Og svo auðvitað þegar það er slæmur máni þá gerum við allan
andskotann sem okkur myndi annars ekki detta í hug. Karlenn sitja
bara rólegir og klóra sér í rassinum og njóta þess að hafa
pjásubölvunina til að sjá um alla þessa hluti sem þeir eru ekkert
að pæla í. Við eigum það jafnvel til að flækja hlutina um of og
grátbiðja heilasellurnar þrjár um hjálp og svo kemur karlmaðurinn
með einhverja svaka einfalda lausn sem hann gat ekki drullað útút
sér fyrr. En þetta er augljóst við getum ekki verið án karlmanna og
þeir ekki án okkar.
Thank god for men!!!! ritgerðinni minn er bjargað
»
19.02.2007 10:17:04 / attikitt
Ég er gjörsamlega lost hérna. Hef ekki hugmynd um hvar bekkurinn
minn er og mér leidist alveg óhemju mikid ad læra dönsku. Held ad
kennarinn nenni ekkert ad hafa mig af tví ad allir læddust
eitthvert svo ég fyndi tau ekki. ég sit tá bara og reyki og leik
mér í tölvunum. ég á ad skrifa 3 sídna ritgerd um heilbrigdiskerfid
í danmörku en get bra ekki med nokkru móti einbeitt mér ad tví
rugla öllu saman og heilatvæ sjálfa mig. Talandi um heilatvott tá
eru auglýsingarnar frá city bank ótolandi! tar er ein auglýsing med
konu med Dolly Parton sem fyrir mynd og er ad syngja um hvad hún sé
brenglad glöd yfir tví ad hafa fengid lán og farid í brjóstastækkun
og keypt nýja skó á sig og hestinn sinn og eitthvad svona sjitt.
kann tetta ordid utan ad og get ekki hætt ad syngja tetta lag trátt
fyrir ad hata tad! Danir og heila tvottur!! alltaf auglýsingahlé
sem eru heilt korter og alltaf sömu auglýsingarnar. Verd
gjörsamlega heilatvegin af tví ad horfa á einn simpsons tátt
Eidur greyid fékk ad kenna á tví. Hann ætladi ad kaupa sér belti
og tad var einhver hommi ad afgreida hann og tjëkkadi hann
tvílíkt út kippti upp peysunni hans 'otarflega mikid til ad máta
beltid og kraup fyrir framan hann og ætladi aldrei ad hætta ad
skoda Eid. Var ad pæla í ad skilja eid eftir tarna med
kleinuhringjavélinni en hafdi ekki brjóst í mér til tess tví
svipurinn á eid lýsti lveg tómri skelfingu og hvolpaaugun alveg ad
naga samviskuna mína. Ekki hægt ad skilja hann eftir en ég hló
alveg eins og ód.
Svo er hún Jóa mín loksins flutt til Horsens. Gekk bara ekki ad
hafa hana upp í sveit og tad í Gedve!! Audveldara ad hanga med
henni og hitta hana. ekki svona mikid strætóvesen.
En ég ætla ad reyna aftur ad gera tetta verkefni. Hej hej
»
13.02.2007 13:48:46 / attikitt
Jæja hér kemur enn einn spurningalistinn. Þið ráðið alveg
hvort þið svarið honum. mér er alveg sama þó þið elskið mig ekki,
alveg sama þó ég skipti ekki nokkru máli. Fine ég hef að minnsta
kosti mig!
1. Hefuru slegið einhvern í
andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Gogga Bush?
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að
vita af því. Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það
vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í
dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver
myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um
þig.
25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?
»
07.02.2007 20:08:05 / attikitt
sit hérna heima hjá kærastanum og er búin að hanga í tölvunni í
vonlausum leikjum. t.d. fann ég einn þar sem ég á að reyna að
sleppa útaf klósetti og svipuð steypa. Er á slæmum mána og eins og
Jóa fékk að heyra þá ét ég tilfinningar mínar á þessum tíma og
mönsa eins og feitur grís sem hefur ekki fengið að éta í þrjá
klukkutíma. Ét bara og vorkenni sjálfri mér af því að ég er komin
með magapínu af öllum þessu supersized negrakossum sem ég fann upp
í aldi.
á föstudaginn var smá partý hjá mér sem byrjaði ekkert svo vel en
þegar strákarnir ákváðu að fara í eitthvað annað partý þá var nú
kátt í kotinu. Bara stelpur og við gerðum það sem okkur langaði
ropuðum og klóruðum okkur á prívat stöðum og fórum í strippóker,
strákarnir urðu frekar svekktir þegar þeir komu aftur og við komnar
aftur í fötin. Allir nema Eiður hann bara jájá okei ástin mín og
var ekkert svekktur
Ég á loksins pening og núna fer hann ekki í einhver fancy boots eða
glamúr dress. onei þessi peningur fer í skuldir og sparnað og
kannski eitthvað outfit sem hægt er að fara í í atvinnuviðtöl og
svona fullorðinsdæmi. Get ekki klætt mig eins og róni eða eins og
alger gelgja í svoleiðis tilefnum. Verð að eiga að minnsta kosti
einn virðingarbúning
Svo er ég alveg drullupirruð á þessum perraupplýsingum sem ég er að
fá sent á ímeilið mitt er búin að fá átta nákvæmlega eins skilaboð
sem eru andlitsmyndir af perrunum,myndir af kynfærunum á þeim og
símanúmer og hvar þeir búa og ímeilin þeirra. Það er nú bara of
finnst mér! svona miklar upplýsingar eru bara fyrir neðan mína
virðingu! hvað á ég eiginlega að gera við myndir af typpinu á þeim
og samskiptaleiðir til þeirra? Þessir menn eru nefnilega ekki einir
um að taka skellinn á gjörðum sinum that's for sure!!!! sérstaklega
ekki Þegar þessir póstar eru að ganga á milli manna
En já ég ætla að spjalla aðeins við Eið og Ísak
Yfir og út
»
29.01.2007 12:25:48 / attikitt
jæja sit hérna og er í skólanum var ad klára verkefnin mín og
svona. má alveg fara en ég ákvad ad vera svo gód og bída eftir
mömmu. hun er ekki alveg jafn klár og ég. Tessi bankamál eru soldid
ad flækjast fyrir mér enntá. er ad fara nidri banka á eftir og
reyna ad gera mig skiljanlega. En danskan mín er alltaf ad verda
betri og betri og ég tarf ekki alltaf pabba til tess ad
hjálpa Kittu litlu úr vandrædum lengur.
Vid skruppum upp í sveit á föstudagskvöld og vorum eina nótt.
vid systkinin urdum brjálud á litlu sláttuvélinni sem er tarna og
tad var ekkert lítid rúntad um sveitina en ekkert gras slegid.
Eydís skvetta klessti á hlidid i frumraun sinni og turfti mína
hjálp til ad komast út greyid kunni ekkert á vélina bara gargadi og
setti fæturna nidur til ad stoppa i stadinn fyrir ad stíga bara á
bremsuna. ég audvitad hló og hló eins og mér væri borgad fyrir tad
en ég var enga stund ad jafna metin tví ad mér tókst ad keyra á
bílinn hans pabba og var álíka kjánaleg. Jói er audvitad alger
snillingur á tessu klessir aldrei neitt nema mig audvitad. honum
fannsta alveg ótrúlega gamana ad plata mig á húddid og svo keyrdi
hann eins og brjál og fór gedveikar torfærur tangad til ég datt af
og svo keyrdi hann yfir mig og stökk á mig grunlausa úr runna tegar
ég var ad taka rúnt á glæsikerrunni. Litli andskotans púkabarn sem
tessi tittur er!
Svo á laugardagskvöld var frændgardurinn mættur og platadi okkur
eid á djammid. fyrsta skipti í mánud sem ég dett ída. Teir lömdu
mig ekkert ad rádi í tetta skiptid en hann eidur fëkk ad kenna á
honum Rambó frænda okkar. Svo kíktum vid út og tótt ótrúlegt sé
stungu saudirnir ekki af eins og teir eru vanir ad gera manni i
hvert skipti sem madur djammar med teim. kannski eru teir loksins
ad mannast og ad troskast. Teir eru ótrúlegir en já teir eru
stundum alveg tokkalegir vid mann. Ekki alltaf ad nenna ad vera
vondir vid mann. Svo lá ég bara í megatynnku í gær og gat varla
hreyft mig. Frekar kunnulegur sjúkdómur....
En tetta er nú bara ordid ágætis blogg hjá mér
Kitta over and out
»
22.01.2007 14:10:25 / attikitt
Jæja Kittan er að taka sig á
er búin að vera edrú frá því að
ég kom heim aftur til Dk og er svaka dugleg að læra og svona. Og
það hefur alls ekki gengið illa. Er bara eldhress og sé ekkert á
eftir djamminu
Svo lét ma mig taka til í öllu húsinu og í hefndarskyni þá henti
ég öllum auglýsingabæklingunum hennar og sveskjan fékk tilfelli
bara og tuðaði þar til að það blæddi úr eyrunum úr Kittinu og hún
fór og sótti bæklingana út í tunnu. En allavega þá eru piggy mama
og piggy papa alveg steinhissa á breytinguni á Kittu piggy.
Svo er fóru ég, Eiður, Anna Karen Og Bine á saw 3 í gær og ég
varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Myndin er jafnvel sjúkari en hinar
og ég kláraði risastóran popp og nokkrar neglur meðan myndinni stóð
og var næstum dottin úr sætinu. Svona er að vera yfir spennt
alltaf. Aumingja stelpurnar voru alveg með í buxunum eftir svipnum
á Önnu Kareni að dæma. En ég er handviss um að þær voru að fíla
horbjóðinn þó þær séu aðeins meiri dömur en ég.
Svo er loksins að rætast úr peningamálunum hjá mér. Búin að fá
pening á dankortið mitt og Kb banki getur bara átt sig núna. Hann
fær sko ekki þessa peninga! Intrum heldur áfram að bögga mig þrátt
fyrir að ég sé búin að finna helling af kvittunum og ybba gogg.
Svona er ísland það vilja allir fá peningana manns sama hvað það
kostar.
Það kannast enginn við pabba minn lengur. Hann ansar
bara ef maður kallar hann Hill Billy og getur bara haldið uppi
samræðum ef það er um búskap, bisness eða traktora. Kallinn er búin
að vera með risatraktorinn sinn í innkeyrslunni í heillangan tíma
og Þetta er ekkert smá flikki enda sást ekkert í húsið okkar fyrir
hlunknum. En það reddaðist þegar öll bréf voru stíluð á Hill Billy
þá gat pósturinn loksins fundið húsið. Pabbi og dellurnar hans
spurning hvað honum dettur í hug næst..
En þetta er komið gott í bili
bæjó
»
15.01.2007 12:37:55 / attikitt
Jæja síminn minn bilaður og ég svaf yfir mig og svo er ég
greinilega of heimsk til að fara í produktionskolen
Gasið lak í
trailernum og ég fékk risakýli á kinnina
bankinn hunsar mig
ennþá og ég fæ ekki peningana mína, jú og bankinn ennþá að væla
yfir örfáum þúsundköllum af kredikortaskuld sem ég get ekki borgað
af því að þeir vilja ekki leyfa mér að fá peningana mína eða neitt
neitt. Kittan líka búin að vera drulluslöpp og vill helst bara
sofa. Búin að léttast of mikið og maturinn vill ekki koma nálægt
mér
Það skilur enginn dönskuna mína nema hasshausinn upp í
sjoppu. Talvan mín var smölluð uppá flugvellinum og ég mátti ekker
rífa mig yfir því og er náttla ekki með tryggingu á hana
Lífið er búið að vera æðislegt síðustu daga og heppnin elt mig á
röndum. En já eitt hefur skeð sem er nokkuð gott... ég er ekki búin
að djamma frá því að ég kom heim frá íslandi ef það er ekki árangur
þá hvað?
Lag dagsins...
If you are happy and you know it clap you hands og svo
framvegis...
»
08.01.2007 20:45:01 / attikitt
Kittan er loksins komin heim í rólegheitin á pönnukökunni. Komið
nýtt ár og þar sem Kittunni hefur alltaf tekist að klúðra öllum
áramótaheitum sínum ákvað hún að snúa á kaldhæðni örlaganna og vera
soldið sniðug. Hérna kemur það þá:
Áramótaheit Kittu:
1. verða verri
2. drekka meira
3. reykja að minnsta kosti tvo pakka á dag
4. reyna að eignast sem flesta óvini
5. kveikja aftur í hjólhýsinu, brenna mig sköllótta og kveikja í
íbúðarhúsinu líka
6.Halda áfram að vera dugleg að mæta í kirkju
Ef þetta virkar ekki þá hlýt ég að vera illilega biluð og ekki
viðbjargandi! Maður verður að reyna allt. Ég reyni allavega! Hlýt
að fá einhver prik fyrir það
Margt hefur gerst á nýju ári. Ég flúði land og endurnýjaði
kærastamálin, ég varð stór stelpa, loksins lögráð en mamma situr
föst við sinn keip og tuðar alveg jafnmikið í mér og áður. Lilja
fór sko í húsmæðraskóla en gafst upp en hún skipti kærastanum líka
út fyrir betra módel. Við Friðjón byrjuðum að búa og kisa
fékk að fljóta með. Friðjón varð fljótlega pirraðurá mér. Samband
Friðjón breyttist lítið nema það gekk einu skrefi lengra.Ég
kynntist fullt af allskonar fígúrum og lærði ýmislegt um danska
menningu. Ég gekk nú aldrei í kirkju á árinu og efast um að það
færi eitthvað að breytast, enda ég ekki beint kirkjurækinn
manneskja...
Pabbi fór í háskóla að læra iðntæknibyggingastærðfræði bull, mamma
fékk ekkert að gera varð að læra tungumálið betur því að hún kann
ekki að æla og tala á sama tíma. Tvíburarnir eignuðust nýja vini og
Eydís þroskaðist annað en tvíburabróðir sinn sem er fastur á kúk og
piss skeiðinu.
Þetta er svona basic review get nefnt alveg fullt meira sem gerðist
en mest voru það einhver helvítis asnaskapur sem á ekki heima þar
sem allir geta fengið vita. Þið verðið bara að notast við gamla
sveitasímann eða hvísluleikinn
Kitta over and out
»
03.01.2007 17:07:12 / attikitt
Hvernig er þetta eiginlega meðp íslenska stráka? Er alveg
gjörsamlega búin að fá upp í kok af athygli og að gaurar sætti sig
ekki við að ég sé með kærasta.
En annars er búíð að vera æðislega gaman fyrir utan það að ég
sakna Eiðs alveg geðveikt mikið. Hann líka er alveg ónýtur heima á
pönnukökunni án mín.
Ég hef ekki stoppað að drekka síðan ég kom á kastrup ætla sko að
taka mér góða pásu þegar ég kem heim. fór á pakkarann með vinum
mínum á fimmtudaginn og já það var tekið nokkuð vel á lifrinni þar.
Svo var líka kíkt á pakkarann á föstudeginum en reyndar án Fríðu
En já þá var bara tekið ennþá betur á lifrinni. Hitta þarna alveg
fullt af fólki sem bauð mig velkomið heim nema Ingvi dyravörður
hann hélt að hann væri barasta alveg laus við mig en já ég ákvað að
pína hann tyvö kvöld bara svona rétt uppá djókið. síðan lagði ég af
stað laugardagsmorgun á ak og byrjaði að dreklka þegar ég kom
þangað
Var næstum því farin á Asshhunter, Asshunter var nebbla í
sjallanum en ég var nú ekki mjög áhugasöm fyrir því enda átti ég
hvort sem er ekkert efni á því. Fór í staðinn í partý með Steffý og
hitti fullt af krökkum
Gisti síðan hjá Steffý þá nótt. Svo fór
auðvitað að snjóa á gamlársdag og Kittan alveg brjálað vel klædd
eða þannig á brennunni oohh heimski snjór!!1 það snjóar sko ekki
svona í Danmörku. Síðan var svo skellt sér á Dj Palla á Sjallanum
og var það alveg þvílíkt stuð, hitti alveg ennþá fleira fólk þar
sem var með mér í bekk og svona. En ég hitti líka fullt af fólki
sem ég nennti bara ekkert að hitta og er alveg hissa á því að það
hafi vogað sér að tala við mig. Svo þegar sjallanum var lokað þá
fór ég bara peningalaus á nætursöluna og fótr beint í spilakassana
og var þar heillengi þangað til´að ég var komin með ásættanlega
upphæð þá fór ég í afgreiðsluna og sagðist sko ætla að fá mat fyrir
þetta! Er barasta orðin eins og alger róni en ég var að drepast úr
hungri þarna og gat ekki hugsað mér að vera lengur svöng. Svo
þurfti maður að fá sér pínuafréttara á nýaársdag, enda aumingja
lifrin á mér komin með ofnæmi fyrir vatni
Og síðanm skelltum við
okkur bara aftur á selfoss og ég hitta krakkana og fengum okkur
smávegis að drekka
Sakna Eiðs og kisu alveg þvílíkt mikið er alveg gjörsamlega að
farast´hérna en já ég sé þau bæði á föstudaginn sem betur fer.
Sakna þín Eiður alveg geðveikt mikið(K)
»
29.12.2006 21:21:38 / attikitt
já þá er maður á slefossi. kíkti á pakkhúsið í gær og fékk mér
blán ópal eins og í gamla daga. svo var ég auðvitað að gera mig
svaka breiða og monta mig eins og ég veit ekki hvað. Síðan vaknaði
ég og lá í leti mest allan daginn.
Svo var slys á austur veginum. Við Gunný vorum bara að rúnta og
erum fyrir af dauptan einhvern jebba og svo alltíeinu rúllar lítill
strákur undan bilnum. Hjólið hans er í maski og hjálmurinn líka,
hjálmurinn er í molum og ég er eiginlega dauðfegin að hann var með
hjálm annars hefði getað farið verr. Við Gunný fengum nett sjokk en
ég hringdi á neyðarlínuna og beið svo eftir lögguni að geta
talað aðeins við´hana. En strákgreyið er nú ekkki mjög mikið
slasaður held ég hann stóð upp sjálfur og labbaði óstuddur á
gangstéttina. var bara svolítið vankaður og skorinn í framan en
alveg heill að öðru leyti.
Ég verð eitt kvöld enn á selfossi og ætla að kíkja aftur á
pakkarann bara og rúlla honum upp. og svo fer ég á ak í
fyrramálið.
Er alveg að verða brjáluð ég sakna Eiðs svo og hann er alveg
handónýtur heima í dk, hefði viljað hafa greyið með en þetta blogg
verður að duga í bili ætla að horfa á cats.
Chiao
»
27.12.2006 16:22:03 / attikitt
Kittan lendir á klakanum milli 2-3 það er að segja ef henni verður
hleypt í gegnum tollinn með allar jólagjafirnar, Er nefnilega vön
að vera stoppuð þegar ég kem nálægt flugvél. Við förum fyrst í
Reykjavík og við Eydís ætlum að kíkja á selfoss þegar við lendum og
vera eina nótt eða svo. svo er planið að leggja af stað snemma á
laugardeginum. Get því bara djammað í rvk á föstudeginum ætla nú
samt að kíkja á pakkhúsið annað kvöld og rifja upp gamla tíma.
Síðan á laugardaginn verður heljarinnar djamm á Akureyri. Mig
hlakkar svo til að ég gæti dáið. Get ekki beðið eftir að sjá ykkur
og gá hvernig þið farið eiginlega að án mín. Ætla ekki að taka
róandi í þessa flugferð bara skella í mig nokkrum bjórum áður en ég
fer í loftiðþ Ætla nebbla að vera hress þegar ég lendi og stinga
strax af að hitta krakkana. Ekki sjéns að ég eyði þessum dýrmætu
klukkustundum í svefn en já mamma er að verða alveg geðveik á mér
og ég geðveik á tuðinu í henni. Ætla að fara að gera eins og hún
skipar svo hún geti lækkað smávegis í sér Við sjáumst!!!!
»
Síður:
1 2 3 ...
7